Ný síða

22. January, 2006

Jæja þá er komin upp ný og endurbætt síða fyrir fjármálaverkfræði nema, þannig að uppfærið bókarmerkin ykkar:

www.fjarmal.com

Núna með myndagallerý, glósum ofl. Aðal póstar héldust á milli en ekki commentin.

Partý!?

24. October, 2005

Jæja kids,

við höfum ákveðið að halda partí á föstudaginn.
Nú vantar bara húsnæðið. Sjálfboðaliðar?

Er þessi síða í ruglinu eða ??

19. October, 2005

hvað er málið…….það er ekki hægt að commenta og allt er í tómutjóni.
Ég legg til að einhver sem er fær í bloggheiminum reddi málunum !!!!

……..farin að læra!!

Er maður að svíkja lit?

18. October, 2005

Ég veit klárlega ekkert hvað þetta excerpt dót fyrir ofan þar sem ég er að skrifa núna gerir svo er þetta verður eitthvað alveg úti að kúka að þá er það sennilega það. En já, hvað segið þið? Ég er alveg kaldur í þessu félagslífi enda maður búinn að vera að temja bakkus allsvakalega síðustu vikur eftir eitt svakalegasta sumarblackout í sögunni.. (Man ákkúrat ekki neitt frá 8.jún fram til lok ágúst!;)). Kannski þarf ég bara að lesa í gegnum bloggin ykkar til að komast að hvar allt er að gerast, bombaði mér bara beint í bloggið svo ég gleymdi því alveg. En já… þá er maður búinn að svíkja lit og farinn að blogga hér líka… allt í góðu er það ekki?? Segjum það… ltr, p****r!

Vandamiðaðnám í eðlisfræði

11. October, 2005

Hvað segið þið, Hvernig fannst ykkur tíminn í dag? Mér fannst bara nokkuð gaman af þessu. Ég veit samt ekkert hvernig maður á að gefa einkunir fyrir þetta. Það voru allir með svo svipað flottar kynningar. Ég frétti samt að það hefði einn hópur verið búinn að vinna allan daginn í vekefninu, svo klukkan svona ellefu þá dó talvan og þau voru ekki búin að save-a. Ojjj hvursu fúlt er það?

Marel - Októberfest

8. October, 2005

Vá! Var gaman í gær…. JÁ. Ég hef örugglega sjaldan skemmt mér jafn vel og í gær. Kl 17:00 mættum við í Marel og það var fyrst stutt kynning á powerpoint formi um starfsemina. Þökkum Halldóri fyrir það. Okkur var síðan skipt í fjóra hópa eftir því hvenær við áttum afmæli, mjög sniðugt. Fyrir þá sem ekki hafa farið í Marel, þá er hægt að labba á efri hæðinni og horfa niður yfir alla starfsemina, svona svolítið eins og útsýnispallar. Þegar við vorum búin að fara í gegnum allt fyrirtækið var okkur svo boðið upp á veitingar, þarna vorum við í einhvern tíma að sötra bjór og spjalla við starfsfólkið. Við vorum svo alveg heillengi að koma okkur í rútuna því við skiljanlega vildum ekkert fara strax.
Það er samt eitt sem ég hef tekið eftir í sambandi við svona vísindaferðir, en það er það að í rútunni á leiðinni í fyrirtækin eru allir svona pínu feimnir og kjanlegir einhvað en í rútunni á leiðinn frá fyrirtækjunum þá er fólk ekki feimið, talar ekki lítið og er ekki á leiðinni heim.
Nei við vorum ekki á leiðinni heim heldur beint á Októberfest. Klukkan var um 20:00 og það voru strax komnar biðraðir á barinn og heill hellingur af fólk. Við í verkfræðinn héldum hópinn svakalega vel, vorum rosamörg saman á borði og stemmarinn var ótrúlegur. Það var ekki annað gert en að skála og hella í okkur og þess á milli var hlegið og skemmt sér. Það er alveg með ólíkindum hvað það er alltaf gaman á þessu Októberfest, veit ekki hvort það er tónlistin eða það að vera að drekka í tjaldi eða hvað það nú er sem myndar svona skemmtilegt andrúmsloft. Við vorum heppin að koma snemma því tjaldinu var lokað og það myndaðist biðröð sem náði frá Háskóla Íslands og niður á tjörn.
Það var ekki annað að heyra á liðinu sem ég hitti í skólanum áðan, en allir væru sömu skoðunar ,,Það var gaman í gær”.

Við höldum okkur bara við þetta

6. October, 2005

Við höldum okkur bara við þetta er þaggi!?
Þetta lúkkar svo fjandi vel. (betra en blog central viðbjóðurinn)

Hver ætlaði að taka að sér bekkjarpartí?

Væri ekki fínt að hafa það eftir eins og 2 vikur? helgina þá?

Er þetta rétta bloggsíðan?

Eruð þið viss um að þetta kerfi sé betra en blogger?

það virðist ekki vera hægt að kommenta hérna heldur!

Hvað er eiginlega málið!!!

Er ég alger auli eða hvað…. ég get ekki kommentað….. hvað er eiginlega málið:P

Bekkjarpartý

Hvernig væri að fara hittast bekkurinn og fá sér einn eða tvo……heyrst hefur að það sé komin sjálfboðaliði til að halda hittinginn en miklar og eldheitar umræður hafa sprottið upp hvenær sé best að halda teitið. Hvað finnst ykkur ???